EFTIR MEÐFERÐ
Við hverju má búast?
Það er eðlilegt að finna fyrir viðkvæmni í og við tönnina sem var rótfyllt eftir að deyfingin fer úr. Viðkvæmnin stendur yfir í 2-7 daga á meðan græðsla á sér stað. Yfirleitt er hægt að meðhöndla óþægindin með algengum verkjalyfjum (Paratabs og Íbufen) en ef þau duga ekki til þá mælum við með því að haft sé samband við okkur, ath. að þetta gerist einungis í 5-8% tilfella.
Endilega hafðu samband við okkur ef:
Mjög miklir verkir og þrýstingur sem fer ekki eftir fyrstu dagana
Sjáanleg bólga
Ójafnt bit
Bráðabirgðafyllingin fer úr
Fyrri einkenni gera vart við sig aftur